Um Húsbrú
Frá tölum að ákvörðun.
Húsbrú er húsfélagsþjónusta fyrir fjöleignarhús. Við höldum bókhaldi húsfélagsins. Svo segjum við ykkur hvað tölurnar þýða — hvað þarf að gera, hvenær, og hvort þið eigið fyrir því.
Stjórn húsfélags fer með fé annarra. Hún fær sjaldnast verkfæri til að ákveða hvað á að gera næst. Það er verkið sem við tökum að okkur.
Hér fyrir neðan sjáið þið hvað það felur í sér: bókhaldið, áætlunina og húsgjöldin, kostnaðarskiptinguna, aðalfundinn og það sem stjórn og eigendur sjá í Yfirsýn.
Það sem við lofum
Þið vitið hvað þarf að gera næst
Tíu ára viðhaldsáætlun með fjármögnun. Henni er haldið við, ár frá ári.
Húsgjöldin eiga sér reikning
Hver króna í húsgjöldunum rekur sig til liðar í áætluninni. Aðalfundurinn greiðir atkvæði um útreikning, ekki tilfinningu.
Réttur kostnaður á réttan eiganda
Kostnaðarskipting reiknuð eftir eignaskiptayfirlýsingu, samkvæmt 43.–45. gr. laga nr. 26/1994.
Bókhald húsfélagsins
Bókhaldið er fært í rauntíma. Hver færsla í bankanum er bókuð jafnóðum, og staðan er afstemmd við bankann á hverjum degi. Þið þurfið ekki að bíða eftir mánaðamótum eða ársreikningi til að vita hvar félagið stendur.
Hraðinn er þó ekki aðalatriðið. Sömu færslur liggja undir hverri tölu sem þið sjáið — stöðu hússjóðs, rekstri á móti áætlun og hlut hvers eiganda. Þess vegna stangast tölurnar ekki á.
- Tvíhliða bókhald Hver færsla er bókuð í debet og kredit, og kerfið hafnar færslu sem stemmir ekki.
- Sótt í bankann daglega Bankafærslur eru sóttar á hverjum degi. Tengingin les aðeins; hún getur ekki greitt.
- Hver færsla á sinn lið Færslur eru flokkaðar á bókhaldslykla. Þegar flokkun hefur verið staðfest gildir hún um sams konar færslur upp frá því.
- Ekkert er strokað út Bókuð færsla stendur. Leiðrétting er ný færsla sem bakfærir þá gömlu, svo sagan sést alltaf.
- Eftirlit Kerfið gengur úr skugga um að debet og kredit stemmi, að allar bankafærslur séu bókaðar og að staðan sé sú sama og í bankanum.
- Rekstrarreikningur og efnahagur Rekstrarreikningur, efnahagur og prófjöfnuður eru alltaf uppfærðir. Árið má sækja í Excel, með áætluninni við hliðina.
Rekstraráætlun og húsgjöld
Húsgjöldin eru reiknuð út frá áætluninni. Hver kostnaðarliður skiptist á íbúðirnar eftir sinni reglu, og útkoman er mánaðargjald hverrar íbúðar.
Í áætluninni sést líka hvað fer í framkvæmdasjóð, svo framlagið er ákveðið um leið og reksturinn.
- Lagt fyrir aðalfund Gjald hverrar íbúðar fer inn í tillöguna og fundarboðið. Hver eigandi sér hvað tillagan þýðir fyrir sína íbúð.
- Samþykktin stendur Þegar aðalfundur hefur samþykkt eru fjárhæðirnar festar. Breyting á skiptireglu síðar breytir ekki því sem fundurinn ákvað.
- Krafa á hverja íbúð Eftir samþykkt er gefin út krafa á hverja íbúð í hverjum mánuði.
- Greiðslur tengdar íbúð Innborganir eru tengdar íbúðinni sem greiðir og gera upp elstu ógreiddu kröfuna fyrst. Enginn þarf að elta millifærslur.
Kostnaðarskipting eftir eignaskiptayfirlýsingu
Hver kostnaðarliður hefur sína skiptireglu. Sjálfgefnu reglurnar fylgja 43.–45. gr. laga nr. 26/1994, og stjórnin getur breytt þeim.
Sama regla gildir í áætluninni og í húsgjöldunum. Hlutirnir ganga alltaf upp í heildina, upp á krónu.
- Jafnt á íbúðir Til dæmis þrif, sorphirða, rafmagn sameignar og umsjón.
- Eftir eignarhluta Annar sameiginlegur kostnaður, eftir hlutfallstölu hverrar íbúðar í eignaskiptayfirlýsingunni.
- Sameign sumra Kostnaður sem varðar aðeins hluta hússins, til dæmis einn stigagang, skiptist á þær íbúðir sem eiga þann hluta.
Aðalfundur húsfélags, frá boðun til fundargerðar
Þegar þið veljið Fundinn mætum við á aðalfundinn, stýrum honum og ritum fundargerð. Við komum með framsetninguna og gögnin.
Í Yfirsýn er haldið utan um fundinn frá dagskrá til framkvæmdar.
- Boðað innan frests Kerfið reiknar lögbundinn boðunarfrest og segir til ef of seint er orðið að boða.
- Fundarboð á hverja íbúð Hver íbúð fær sitt bréf, með því sem tillögurnar kosta hana og umboðseyðublaði.
- Atkvæði rétt talin Atkvæði eru talin bæði eftir fjölda og eftir eignarhlutum.
- Fundargerð Drög að fundargerð eru unnin úr því sem var samþykkt. Hún er undirrituð og birt eigendum.
- Framfylgd Ákvarðanir fundarins eru skráðar sem verk, svo ekkert gleymist milli funda.
- Mál frá eigendum Eigendur geta óskað eftir fundarefni úr sinni Yfirsýn.
Það sem stjórn og eigendur sjá í Yfirsýn
Í Yfirsýn eru gögnin sett fram fyrir þá sem nota þau. Allir skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Stjórnin
- Rekstur á móti áætlun, liður fyrir lið.
- Allar færslur og bókhaldið á bak við þær.
- Stöðu innheimtu: hvaða kröfur eru greiddar og hverjar ekki.
- Fundi, skjöl og skrá yfir íbúðir og eigendur.
Hver eigandi
- „Í hvað fara húsgjöldin mín?“ — hvern lið og færslurnar á bak við hann.
- Sínar greiðslur, og hvernig hver greiðsla skiptist á rekstur og sjóð.
- Sinn hlut í rekstri hússins og í framkvæmdasjóði.
- Fundarboð með því sem tillögurnar þýða fyrir íbúðina, og fundargerðir.
- Skjöl sem stjórnin deilir með eigendum.
Hver eigandi sér sína íbúð, ekki annarra, og enginn sér hver skuldar. Maki eða meðeigandi getur fengið lesaðgang.
Spurt og svarað
Hvað gerist þegar gjaldkerinn hættir?
Ekkert þarf að flytja. Bókhaldið er hjá Húsbrú, ekki í möppu eða tölvu eins stjórnarmanns. Ný stjórn fær aðgang og sér sömu tölur og alla söguna.
Hefur Húsbrú aðgang að peningum húsfélagsins?
Nei. Húsbrú les bankareikninga húsfélagsins en getur ekki greitt af þeim. Stjórnin ræður hvað er greitt.
Hver ber ábyrgð á ákvörðunum?
Stjórnin og aðalfundurinn, eins og áður. Við leggjum fram tölurnar og tillögurnar; þið ákveðið.
Þurfa allir eigendur að nota Yfirsýn?
Nei. Hver íbúð hefur einn tengilið sem fær fundarboð og aðrar tilkynningar, líka á pappír. Yfirsýn er fyrir þá sem vilja fylgjast með.
Hvað kostar þjónustan?
Það fer eftir húsinu og þjónustuleiðinni. Þið fáið tilboð fyrir ykkar hús, án skuldbindingar.
Hvernig byrjum við?
Þið biðjið um tilboð og segið okkur frá húsinu. Við svörum innan tveggja virkra daga og kynnum tilboðið fyrir stjórninni ef þið viljið. Þegar samið er setjum við húsfélagið upp í Yfirsýn.
Það sem við erum ekki
Ekki lögmannsstofa
Þegar þarf lögfræðiálit er það keypt inn og merkt sem slíkt.
Ekki húsvarsla
Enginn húsvörður, ekkert starfsfólk á staðnum og engin lyklavarsla.